Aðalvalmynd

Klukkan

Auglýsing

Undirsíðukubbur

Innskráningar kubbur

Yfirlit

20. september 2008 klukkan 17:03
Jæææja nú er kominn tími á blogg!

Bríet skrifar.

Síðan við blogguðum síðast hefur slatti gerst, ég og Karen fórum á þjóðhátíð til dæmis. Á þriðjudeginum eftir þjóðhátíð dó hann Gústi okkar, hjartað gaf sig og þetta var voðalega dramatískt allt saman. Eftir það varð hann Jóakim ekki viðræðuhæfur og leitaði að bróður sínum allan daginn. Úr varð að við fengum nýjan bróður, hann Villa litla, gulan skógarkött (fullt nafn: Vilhjálmur Andrés aðmíráll Brínika) og gengur sambúðin svona líka glimrandi, þó svo að þeir ná ekki alveg jafn vel saman og Jói og Gústi.

Síðan leið að Spánarferð og ekkert slæmt af henni að segja, gerðum reyndar lítið annað en að tana og versla, hefði mátt vera meira djamm. Bætum það upp næst. Brosandi

Strax eftir Spán byrjuðu skólarnir hjá okkur öllum og það er kannski rétt að taka það fram að engin okkar er í sama námi og í fyrra; Ása Ninna komin í Iðnskólann í hárgreiðslu, ég í Kvikmyndaskólann og Karen í Kennó. Okkur líður vægast sagt mun betur núna!

Það er nú svosem það eina sem við höfum aðhafst síðan í ágúst, erum bara á fullu í skólanum.

Ætli Karen vilji ekki koma því á framfæri núna að hún ætlar að halda heljarinnar afmæli þann 1.nóvember og ykkur er boðið. Hún er búin að vera að spá í þessu blessaða afmæli síðan í ágúst þannig að endilega mætið og gleðjið hana!

Og svona í lokin verðum við að segja að það er stór missir að hún Unnur okkar er flutt til Madrid, hún er gull af manni þessi stúlka Koss

Á Spáni er gott að djamma og djúsa...

26. júlí 2008 klukkan 16:34
Kominn tími á nýja færslu? Ég held það...

Þetta er Ninna hér á ferðinni, þegar þetta er ritað er Karen á Laugarvatni að slá og Bríet er sofandi. Kettirnir kúra saman frammi í stiga.

Ég fór með Gústa til dýralæknis um daginn út af hjartanu í honum, það var kominn tími til að gera eitthvað í þessu. Svo fór Bríet seinna um daginn og sótti hann og fékk þá þær leiðinlegu fréttir að hann er veikur og mun aldrei lagast. Hann er með vatn í lungunum og í kringum hjartað og eina leiðin til að halda í honum lífi er að gefa honum eina töflu á dag, alltaf. En eftir að Bríet hafði útskýrt fyrir dömunum hjá Dagfinni (dýralækni) að það væri agalega erfitt að gefa Gústa pillur fékk hún sprautur með sér heim og núna vatnsblandar hún alltaf pilluna og sprautar henni svo upp í munninn. Mjög einfalt og auðvelt. :)

Bríet er byrjuð að vinna á Dubliners um helgar, hún er glasabarn svona í fyrstu en færist líklega yfir á barinn mjög fljótlega.

Annars styttist í Þjóðhátíð, Bríet og Karen sigla með Herjólfi á föstudaginn næsta en Ninna verður barasta í bænum að vinna ALLA helgina. Það er smá biturð í kellingunni, en það verður bara að hafa það, hef ekki efni á því að fara bæði á Þjóðhátíð og til Costa.

Stuttu eftir Þjóðhátíð förum við svo til Costa, bara 12 dagar þangað til! :D (sorry Karen, ég veit við eigum ekki að tala um þetta fyrir framan þig). Karen verður heima að læra fyrir próf á meðan...

Svo bara byrjar skólinn bráðum, sumarið er að verða búið og fuglarnir fljúga suður á bóginn. Er þetta sumar ekki búið að vera fljótt að líða? Nei ok, það er alveg heill mánuður eftir, ég er aðeins að ýkja.

En nú er ég bara farin að bulla.

Skiljið eftir ykkur spor...

Borðið þér orma frú Norma?

06. júlí 2008 klukkan 19:43
Halló, þetta er Bríet ofurbloggari.

Helgin hérna á Smiðjustígnum er búin að vera mjög fín, enda auðvelt að finna sér afþreyingu í miðbænum.

Ég og Kristín röltum um bæinn í gær og skoðuðum útimarkaðina, fundum flottar flíkur á Organ og neyddumst til að kaupa smá (jafnvel þó við megum það ekki...).
Eftir það neyddi ég Ásu Ninnu til að koma með mér á opnun myndlistarsýningar í Gel þar sem indversk kona sýndi ótrúlega töff myndir. En aðallega vorum við mjög áhugasamar um að komast nær hvítvínsborðinu.

Röltum svo með hvítvínið í garðpartý í Sirkusportinu og hlustuðum á ljúfa tóna þangað til að við föttuðum að við vorum svangar, þá skottuðumst við á Vitabar og snæddum Gleym-mér-ei borgara með Megasi og kúreka í neonbláum stígvélum.

Að þessu loknu hófst allsherjar brölt og rölt um líklega allar götur miðbæjarins, sem var alveg hreint dásamlegt, húsin hérna eru náttúrulega alveg milljón.
Fórum svo í Hallgrímskirkju og fengum stalker... ótrúlega sætur kisi sem hoppaði og fór í kollhnísa fyrir okkur þangað til að okkur var nóg boðið og flúðum í höggmyndagarð Einars Jónssonar við hliðina þar sem eru gullfalleg listaverk.

Síðan var bara farið snemma í háttinn... jább við erum officially orðnar gamlar kellingar!
Enda vantar djammbolta heimilisins, hana Karenu. Við erum farnar að sakna hennar frekar mikið!
Hún er nú samt búin að lofa að koma á fimmtudaginn og vera hérna yfir helgina, þurfum að fara að skrifa undir nýjan húsalegusamning, sem þýðir að við verðum hérna í allavega eitt ár í viðbót. Brosandi

Annars er lítið að frétta, við erum, eins og áður segir, allar að hefja nýtt nám í haust sem þýðir einfaldlega að Háskóli Íslands sökkar! Hlæjandi

Ég og Karen ætlum á þjóðhátíð, Ása Ninna ætlar að beila sem áður! Öskrandi Fæ loksins (vonandi les mamma þetta!) þjóðhátíðarullarpeysuna sem mamma hefur verið að prjóna undanfarin 3-4 árin! Geðveikt flott peysa sem ég gerði kröfur um útí ystu æsar en mamma greyið hefur verið svo hrikalega slæm í olnboganum að hún hefur bara hreinlega ekki getað klárað hana, þrátt fyrir að hafa gert einar 7-8 handa Einari Páli í millitíðinni!

Björgúlfsfeðgar, þrjú stykki, komu í Fair Trade í gær. Keyptu trérisaeðlu frá Indlandi að upphæð krónur 2710.-

Ása Ninna er búin að kaupa sér fjögur skópör á rúmri viku.

Fleira er ekki að frétta að sinni.

I got it!

24. júní 2008 klukkan 15:12
Ósköp eru fáir farnir að líta inn á  síðuna okkar. Annaðhvort það, eða að fólk kann ekki að skrifa. Það er nebbla svo lítið mál að skilja eftir sig lítið komment.

Héðan er ýmislegt að frétta. Við stöllur hófum allar nám við Háskóla Íslands síðastliðið haust en erum allar að skipta um nám núna. Ása Ninna er komin inn í hárgreiðslunám í Iðnskólanum í Reykjavík, Bríet er komin inn í Framleiðslu&Leikstjórn í Kvikmyndaskólanum (ein af 12 af 300 umsækjendum sem komst inn) og Karen er komin inn í Kennó, sem heyrir reyndar undir Háskólann núna.

Kettirnir dafna vel, reyndar er smá kúkavesen á Jóakim en við erum að hugsa um að bregða á það ráð að rífa teppið af stiganum frammi, bæði losnum við þá við lyktina sem er orðin föst þar, og svo höldum við að það líti bara mun betur út. Þurfum reyndar að fara að grennslast fyrir um hvernig við förum að þessu öllu saman. Einhver ráð?
Kettirnir eru nú alveg óðir í að fara upp á þak, reyndar hefur Jóakim gert það lengi, en nú hefur Gústi bæst í hópinn og þeir skemmta sér alveg konunglega. Gústi er reyndar með mun minna hjarta en Jóakim og er ekki eins kræfur, en það er ágætt, þá þurfum við ekki að hafa of miklar áhyggjur af honum.

Húsaleigusamningurinn okkar rennur út núna 1. júlí og þessir blessuðu kallar sáu sér leik á borði og ætla að hækka leiguna um 10-15%. Það er svosem ekkert svo mikið, en munar miklu fyrir fátæka námsmenn.

Annars eru bara 44 dagar þar til Ása Ninna, Bríet, Kristín og Davíð fara til Costa del Sol!! Bríet fór loks í gær og borgaði ferðina, sem var búin að hækka síðan Ása Ninna borgaði fyrir mánuði, þetta er nú meira ruglið. Núna bara krossum við fingur um að evran lækki eitthvað áður en við förum.

En tölum nú ekki meira um það því á meðan þau spóka sig á Costa þarf Karen að vera heima og lesa undir próf... Hún er nú stödd á Laugarvatni í sumar og fá hinir Smiðjustígsbúarnir varla að sjá hana, nema rétt í nokkrar mínútur í senn. Hún kom hér við í gær í smástund en var svo rokin aftur. Enda á hún erfiðara með að komast á milli en áður þar sem greyið hann Gustur (bíllinn hennar) dó um daginn. Blessuð sé minning hans.

En vá, ég var næstum búin að gleyma aðalmálinu.
Um daginn fóru Bríet, Ása Ninna, Kristín, Svava og Guðrún í bíó til að sjá loksins Sex&theCity bíómyndina. Þetta var hin fínasta mynd og eftir hana fóru Ninna, Bríet og Kristín á Kofann og fengu sér Cosmopolitan, svona í tilefni dagsins. Mmmm hvað það er góður drykkur! Erum að hugsa um að fara að kaupa okkur það sem þarf í hann svo við getum fengið okkur hann hérna heima á heitum sumarkvöldum. ;)

En ætli þetta dugi ekki í bili, þið munið að skilja eftir ykkur spor...

Vestfirðirnir!!

10. júní 2008 klukkan 01:00

Þessi færsla er sú sama og á blogginu hennar Ásu Ninnu, við nenntum bara ómögulega að gera tvær færslur um sama efni.


Sunnudagur 25. maí

Við vöknuðum um hádegi og ætluðum að leggja í hann. Það þurfti að sturta sig og svona svo brottför var aðeins seinna en áætlað var, eða um hálf4. Að keyra vestur var alveg frábært. Við stoppuðum ansi oft, komum t.d. við í Borgarnesi, Búðardal og Hótel Bjarkalundi, þar sem við hittum Pétur Jóhann og Ólafíu Hrönn.  Spjölluðum nú reyndar ekkert við þau, en jæja.

P1000523

Við stoppuðum líka og tókum alls kyns útsýnismyndir, en ég er eiginlega búin að eyða þeim öllum aftur. Ég skil ekki af hverju maður gerir þetta alltaf. Ég elska fallegt útsýni og tek alltaf myndir, en svo finnst mér hundleiðinlegt að skoða útsýnismyndir!
En allavega. Við stoppuðum ansi oft á leiðinni, en samt vorum við komnar á Seftjörn um hálf11. Seftjörn er bara beint á móti Brjánslæk, fyrir ykkur sem eruð eitthvað kunnug þarna fyrir vestan.
Við vorum ekkert að tvínóna við hlutina heldur skelltum okkur bara beint í drullugallana og fórum beint í fjárhúsin. Við áttum semsagt að eyða nóttinni þar. Bíbí, sem er amma hennar Bríetar, kenndi okkur það helsta og fór svo inn að sofa, orðin dauðþreytt greyið.
Fyrir ykkur sem ekki vitið þá þurfa að sjást tvær klaufir og snoppa svo að fæðingin gangi eðlilega fyrir sig. Ef það sést eitthvað annað, t.d. bara snoppa, ein klauf og snoppa eða eitthvað slíkt, þá þarf að hjálpa kindinni að bera. Við vorum ansi smeykar við að gera eitthvað sjálfar, og þegar kom að því að það þyrfti að hjálpa einni kindinni hljóp Bríet inn og vakti ömmu sína (sem var reyndar búin að segja að við ættum að vekja hana ef eitthvað kæmi uppá sem við réðum ekki við) og hún kom og hjálpaði kindinni að bera.
P1000553 Bíbí að gefa pela.



Mánudagur 26. maí

Fórum að sofa milli 5-6 um morguninn og vorum vaktar í hádegismat um hálf1. Fengum skyr og brauð og svo var farið að vinna. Ég og Bríet fórum ásamt Gullu, frænku Bríetar, í gróðurhúsið sem amma hennar og afi eiga og flokkuðum plöntur, og Karen var heima á bænum að hjálpa til í fjárhúsunum. Ekki bar mikið til tíðinda þennan daginn.
Um kvöldið fórum við Bríet í fjárhúsin en Karen fékk að sofa þessa nótt. Við Bríet vorum búnar að ákveða að þessa nótt skyldum við sko alls ekki kalla á ömmu hennar ef eitthvað kæmi uppá, við gætum alveg ráðið fram úr því sjálfar! Kvöldið byrjaði rólega, en fjörið byrjaði um 3 leytið, þegar við sáum að það vantaði eina klauf hjá einni. Nú var að hrökkva eða stökkva. Eins og flestir vita eru kindur mjög styggar og því er vandasamt að komast að þeim, sérstaklega þegar þær eru með fleiri kindum í stíu. Við fórum því rosalega rólega að henni og ég þurfti að fara með höndina í klofið á henni og ná í slím fyrir hana að þefa af svo hún myndi treysta mér. Það gekk og Bríet náði taki á henni og þá byrjaði fjörið. Ég þurfti að setja helling af sleipiefni á hendurnar á mér og svo bara skella mér inn í rolluna. Ég þurfti að ná taki á hinni klaufinni, rétta hana af og toga svo lambið út. Þetta tók ekkert svo langan tíma og þegar lambið var komið út stóð ég skjálfandi í adrenalínsjokki með blóð upp að olnbogum! Vá, hvað ég var stolt af sjálfri mér. Þetta var þó ekki það eina sem gerðist þetta kvöld því það komu 4 lömb á klukkutíma hjá okkur! Brjálað að gera, en okkur fórst þetta vel úr hendi!



Þriðjudagur 27. maí

Karen vaknaði klukkan 8 og fór í gróðurhúsið með Gullu. Við Bríet vöknuðum svo á hádegi og Bríet fór í gróðurhúsið til stelpnanna en ég varð eftir á bænum. Ég þurfti að vera í fjárhúsinu svona ef einhver skyldi ætla að bera meðan Bíbí og Einar fóru með rollur upp í fjall. Það gerðist þó ekkert markvert. Um kvöldið fékk ég svo að fara að sofa meðan Bríet og Karen voru í fjárhúsinu.



Miðvikudagur 28. maí

Ég vaknaði klukkan 8 og fór í gróðurhúsið. Karen kom svo eftir hádegið og Bríet var heima á bænum. Hún lenti aldeilis í ævintýrum þann daginn, þurfti að eltast við eina sem var með "skakkt" lamb og hjálpa henni að bera, og svo var önnur sem bar á hlaupum, lambið kom út með bakið á undan og það er nú bara mesta mildi að það skuli hafa lifað þetta af. En vegna þess að hún bar á hlaupum þá hafði hún í raun ekki hugmynd um að hún ætti lamb, svo hún tók ekkert við því. Bríet sat því, ein, með lambið í fanginu í einn og hálfan tíma og var þess fullviss um að það væri bara að fara að deyja, því ekki fékk það að drekka og Bríet hafði engin tök á að fara inn að hita pela eða neitt slíkt. Þegar við komum svo úr gróðurhúsinu gargaði hún á okkur að koma og þá var nú varla lífsmark með lambinu. Ég hljóp inn og hitaði pela og var með hjartað í buxunum á meðan hann var að hitna. Ég var alveg viss um að lambið yrði dautt þegar ég kæmi út aftur! Hljóp svo enn hraðar til baka (ég hef aldrei á ævinni hlaupið svona hratt) og við gáfum því að drekka og þá braggaðist það aðeins. Þegar Bíbí kom heim ákvað hún svo að best væri að taka það með inn og hafa það inni yfir nóttina og athuga svo daginn eftir hvort mamman vildi það. Þetta er hrútur og Bríet ákvað að skíra hann Óliver Twist, svona fyrst hann var munaðarlaus.
Um kvöldið ákváðum við svo allar að vera saman í fjárhúsinu. Það voru nú bara allar kindur sultuslakar þetta kvöld svo við fórum í fjöruferð, týndum skeljar og busluðum í ánni. Þetta var frábær nótt!



Fimmtudagur 29. maí

Vöknuðum um tvöleytið og fórum í bíltúr. Stefnan var tekin á Látrabjarg. Við stoppuðum oft á leiðinni, fórum í fjöruna og busluðum, fórum á safnið á Hnjóti og skoðuðum Garðar, sem er elsta stálskip á Íslandi. Svo komum við loks á Látrabjarg og vávává, þetta er án efa einn fallegasti staður á Íslandi. Ég man ekki eftir því að hafa komið þarna áður, en mamma sagði að ég hefði komið þarna þegar ég var svona 4-5 ára, og vá, við fengum bara frábært veður og þetta var algjört æði. Mig langaði bara alls ekki heim á því augnabliki. Reyndar skyggðu fréttirnar frá skjálftanum svolítið á, en ég vissi að ég gæti barasta ekkert í því gert á þessu augnabliki. :)
Við ætluðum svo að rúnta helling í viðbót, fara á Tálknafjörð og Bíldudal, en klukkan var bara orðin svo margt að við létum okkur nægja að kíkja aðeins inn á Patró og fórum svo aftur á Seftjörn þar sem við fórum beint á síðustu næturvaktina í fjárhúsinu.
Þess má geta að Ólíver fór til mömmu sinnar um morguninn og hún tók alveg við honum, og var barasta glöð að sjá hann.
P1000570 Ólíver Twist!



Föstudagur 30. maí

Þá var að fara úr sveitagírnum yfir í smábæjargírinn. Við vorum orðnar svo miklar sveitakellingar að við vorum bara ekki vissar um að við myndum höndla breytinguna, haha. Á leiðinni yfir Kleifaheiði keyrðum við fram hjá Kleifabúa, en það er varða í mannslíki sem vegavinnumenn reistu árið 1947. Bríet og hennar fjölskylda hafa alltaf bibbað tvisvar og veifað þegar þau keyra framhjá, svo auðvitað gerðum við það líka!
Við komum á Patró um 7leytið og fórum þá á Þorpið, sem er eini veitingastaðurinn þar (og er í eigu Kollu, frænku Bríetar) og fengum okkur að borða. Svo fórum við til Steinu, frænku Bríetar (ég held að það séu ALLIR þarna skyldir Bríeti) þar sem við vorum búnar að fá gistingu, komum okkur fyrir og opnuðum svo langþráða bjóra.  Vorum bara heima hjá Steinu þetta kvöld og fórum svo á ball, en fórum nú lítið innfyrir, enda var bara mesta stuðið fyrir utan. Svo var það bara heim, Sammi frændi étinn og svo farið að sofa.

P1000586 Kellurnar með Kleifabúa.



Laugardagur 31. maí

Ég vaknaði snemma, eða um hádegi, en stelpurnar kúrðu "aðeins" lengur, eða til þrjú, og því varð lítið úr áætlun dagsins, sem var að fara niður á bryggju og taka þátt í hátíðahöldum. Við fórum svo niðrá bryggju um 6 en þá byrjuðu útitónleikar þar sem margar mjög góðar hljómsveitir stigu á stokk, ber þá helst að nefna Hraun og Johnny and the Rest, sem eru tvær af mínum uppáhaldshljómsveitum. Um kvöldið fórum við svo í partý til stráks sem heitir Atli, sem er reyndar ekki skyldur Bríeti, og svo á ball, en við ákváðum að vera ekkert að eyða pening í þetta ball, enda sama hljómsveit og daginn áður, heldur vorum bara fyrir utan í stemmaranum. Ég og Karen kíktum svo aðeins í eftirpartý hjá hljómsveitunum (við erum svo miklar grúpppíur) en þar var eiginlega bara leiðinlegt, svo við fórum aftur upp í félagsheimili, náðum í Bríeti, Guffa (bróður Bríetar) og Helga (frænda Bríetar) og fórum heim að fá okkur Samma frænda og sofa.
P1000660 Ég ásamt Kela (úr Johnny and the Rest)



Sunnudagur 1. júní

Nú var sko vaknað snemma, á sjálfan sjómannadaginn. Fórum niðrí Krók, þar sem hátíðahöldin voru, og fylgdumst með alls kyns skemmtiatriðum og keppnum, sem var bara mjög gaman. Keyptum okkur boli og sjóhatta og fórum svo heim og ákváðum að leggja okkur aðeins. Við vöknuðum svo við dýrindis ilm, en þá var hún Steina (sem er algjört æði) búin að elda hrygg ofan í liðið! Aldeilis myndarskapur í kellunni!
Svo var það sturta og sjænerí, partý hjá Atla og ball. Ballið gekk nú ekki slysalaust fyrir sig, ég var í rokna fíling að dansa við Rebekku (vinkonu Katrínar frænku), missteig mig eitthvað og hrundi beint á sviðið og uppskar kúlu á hausinn, mar á öxl og rooosalega blátt og marið eyra, og allt blátt í kringum eyrað. Bríet var í sínum mestu makindum að bíða eftir klósettinu þegar ofn, sem var fyrir aftan hana, losnaði og hrundi beint á fótinn á henni! En við komumst þó heilar heim, fengum okkur Samma frænda og fórum að sofa.



Mánudagur 2. júní

Þá var komið að heimferð. Við kvöddum Vestfirðina með tár í augum og hétum því að fara þangað fljótlega aftur. Það var svo margt sem við náðum ekki að gera og margt sem við náðum ekki að skoða svo að við bara verðum að fara aftur. Vonandi förum við bara aftur í sauðburð á næsta ári.
Fyrir ykkur sem viljið sjá myndir þá eru myndir á mæspeisinu mínu, www.myspace.com/ninnakatrinard, en það þarf að vera vinur minn (á myspace) til að skoða þær.


Nærbuxurnar hans afa!

15. maí 2008 klukkan 20:45
Það er nú svosem ekkert stórkostlegt að frétta, en um að gera að henda inn nýju bloggi.

Bríet kláraði prófin í dag, til hamingju með það! Núna erum við allar komnar í sumar"frí" og erum allar afar óákveðnar með framtíðina. En það er bara seinni tíma vandamál.

Af köttunum er það helst að frétta að Jóakim spásserar nú í tíma og ótíma úti á þaki og skemmtir sér þar konunglega við að veiða flugur. Okkur líst nú stundum ekki alveg á blikuna en hann passar sig nú, kallinn. Það eina sem hann gerir sem okkur líkar ekki sérlega mikið við er að fara upp á svalir hjá nágrönnunum. Það held ég að þeim myndi bregða í brún ef þeir litu út um gluggann og sæu kött úti á svölum á 4. hæð!

Karen og Ása Ninna voru hörkuduglegar í fyrradag þegar þær komu heim úr Bónus. Þeim blöskraði allt ruslið, stubbarnir og glerbrotin í portinu hérna heima svo þær tóku sig til og sópuðu og tóku til í öllu portinu. Þetta er náttla allt annað!

Annars er lítið að frétta, munið bara eftir PROM útskriftarpartýinu laugardaginn 24. maí!

Svo förum við vestur daginn eftir það, og svo er það bara Costa del Sol (fyrir Bríeti og Ninnu) eftir 84 daga, ekki nema!

Skiljið eftir ykkur spor...

Vorvindar glaðir

08. maí 2008 klukkan 17:22
Halló!

Helst í fréttum á Smiðjustígnum síðan síðast er auðvitað fyrsta afmælið hans Jóakims, en það var þann 1.maí sl. Hann naut dagsins vel, fékk nammi og lék sér uppi á þaki! Hann er farinn að gera það óvenju oft undanfarið en auðvitað fylgjumst við með honum.

Karen er reyndar líka aðeins byrjuð á þessu, Bríet var að leita að henni einn sunnudagsmorguninn og fann hana loksins sitjandi uppá þaki í náttfötunum!

Eitthvað verður maður að gera þegar maður á ekki svalir, ekki satt?

Annars eru það bara próf, próf, próf hjá 2/3 okkar og ekkert skemmtilegt um það að segja.

Endanleg dagsetning er komin á vesturför okkar, við förum sunnudaginn (eftir bekkjarmótið!) 25.maí.
Ætlum semsagt að keyra vestur á Seftjörn á Barðaströnd þar sem Bíbí og Einar (amma og afi Bríetar) búa og hjálpa þeim í sauðburðinum. Við skráðum okkur 26.-29. og eftir það verður haldið á Patró og Selfyssingunum kennt að fara á alvöru sjómannadag!

Sjómannadagurinn á Patró er nefnilega engu líkur, 4 daga (lágmark) stanslaust djamm á einum fallegasta stað landsins. Við hvetjum ykkur því til að skella ykkur vestur fyrstu helgina í júní og upplifa þetta! Hlæjandi

Svo verðum við eiginlega að fara á Látrabjarg og svona þetta klassíska túristadæmi.

Förum svo aftur suður mánudaginn 2.júní, vonandi með Baldri (Breiðafjarðaferjunni) svo að við þurfum ekki að keyra þetta drulluþunnar... Hissa

Svo tekur bara sumarið við, Karen fer á Laugarvatn og verður þar í allt sumar að slá gras á meðan Ása Ninna og Bríet verða í bænum. ÁNK í Ríkinu og BE í Fair Trade.

Framtíðin er svo alveg óráðin...

Nothing compares to you! Aloha loaaauu

25. apríl 2008 klukkan 19:17

Halló!

Jæja vikan sem er að líða var bara ansi ágæt hérna, fengum góða gesti á laugardagskvöldið og það var mikið húllumhæ. Orri, Hildur, Martha, Krissa, Jónorri og Keli komu til okkar frekar síðla kvölds og allir hálf ,,heilbrigðir'' ennþá þannig að við brugðum á það ráð að fara bara í drykkjuleik sem tókst svona líka vel!  Brosandi
Brunuðum svo niðrí bæ og ætluðum sko aldeilis að fara á nýja staði en nei nei, við fórum auðvitað bara á Kofann og Celtic að vanda.

Á sunnudaginn var það svo gamla góða þynnkubíóið og í þetta skiptið var það óvenjugott. Við leggjum það stundum í vana okkar að fara á jah, heilalausar Hollywood myndir á sunnudögum og ákváðum því að fara á Forgetting Sarah Marshall. Hún fór langt yfir væntingar og við lágum svoleiðis í kasti alla myndina. Þó þetta sé samt bara svona Hollywood afþreying, þá er hún góð í sínum flokki, sem er alls ekki oft hægt að segja og við mælum eindregið með henni! Þið fattið þá titilinn ef þið sjáið myndina! Hahaha...

Á þriðjudaginn kíktum við svo í Kringluna og Bríet og Ása Ninna stálust til að kaupa sér klikkaða kjóla í Spútnik sem verða líklega notaðir á Prom Night-inu sem við ætlum að halda fyrir gamla bekkinn núna 24.maí nk.

Við leggjum ekki í að tala um þessa vitleysu sem fór fram við Rauðavatn á miðvikudaginn en eitt er víst að við erum alveg að fá upp í kok á þessum trukkurum... Segjum ekki meir.


Í gær, fimmtudag og sumardaginn fyrsta, höfðum við hugsað okkur að fara bæði í göngu um Þingholtin og eins draugagöngu seinna um kvöldið. Þar sem við erum ekki mjög árrisular manneskjur misstum við af fyrri göngunni og sú seinni þurfti að víkja fyrir öðrum atburði. Við erum nefnilega svo traustir vinir að við tókum tónleika strákanna fram yfir draugana og skelltum okkur á Kaffi Rót til að hlusta á Spirit of Moonflower. Þeir voru betri en nokkurn tíma og fiðluleikarinn sem var með þeim í þetta skiptið fór alveg á kostum.


Annars lofar helgin bara góðu, bæði Karen og Ása Ninna eru að fara á árshátíðir á laugardaginn og í kvöld verður kósý time og horft á Ungfrú Reykjavík.

Yfir og út!

Sumarið er tíminn

18. apríl 2008 klukkan 18:30
Hæ hó!

Jæja nú verðum við að fara að verða duglegri við að blogga!

Annars er allt gott hérna í miðbænum, skólinn búinn hjá Karenu og Bríeti og eins og flestir vita er Ása Ninna hætt í skólanum og ætlar að reyna við leiklistina.

Jóakim hefur loksins misst náttúruna og Gústi/Friðrik er enn á þessum bölvuðu hjartalyfjum og við vitum ekkert enn hvað gengur að honum.

Helgin verður nú ekkert svakalega spennandi hjá okkur, Ása Ninna er að vinna, Karen mestmegnis á Laugarvatni og Bríet að passa.
Nema auðvitað að við tökum ,,skólalokadjamm'' annað kvöld! Brosandi

Tinna kom í heimsókn á miðvikudaginn til að æfa sig fyrir próf í Söngskólanum og svo fór hún með Karenu og Ásu Ninnu á leikritið hans Arons í Möguleikhúsinu og heppnaðist það bara ansi vel hjá kallinum.


Nú fer óðum að styttast í sumarið, er einhver með hugmyndir að sumarvinnu?!


                                   


Ahh íslenskt sumar... Fer að koma útileguveður!  Glottandi

Jæja látum þetta duga í bili, ástarkveðjur frá Írak (á ekki að vera svo mikið stríðsástand hérna í miðbænum?)   Koss

Lasið hjarta

11. apríl 2008 klukkan 11:53

Gærdagurinn var frekar erfiður dagur. Þegar Ása Ninna vaknaði í morgun fór hún fram og sá að kettirnir voru sofandi í sófanum. Þá heyrði hún að Gústi andaði eitthvað skringilega. Hann er búinn að vera með frekar öran andardrátt undanfarið en aldrei hefur heyrst svona í honum. Við héldum að hann væri kannski svona rosalega kvefaður, en þetta var samt frekar skrýtið, því Karenu sýndist hann nú ekki vera með neinn hita. En paranojaða Ása Ninna ákvað að fara með hann til dýralæknisins, ákvað að það væri betra að láta dýralækninn segja henni að hún væri bara klikkuð heldur en að láta þetta ganga svona áfram.

Þau fóru því í göngutúr, mæðginin, upp á Skólavörðustíg, til Dagfinns dýralæknis. Gústi var nú frekar órólegur í fanginu á henni, enda inniköttur og hefur aldrei farið út. Það hjálpaði nú ekki til að það er verið að vinna eitthvað við Skólavörðustíginn og það munaði minnstu að hún missti hann úr fanginu á sér, hann var svo hræddur við vinnuvélarnar.


En til dýralæknisins komumst þau á endanum og hann róaðist fljótt. Yndislega konan sem tók á móti þeim var heillengi að skoða hann og hlusta hann. Mældi hann og komst að því að hann væri ekki með hita, og henni fannst þetta ansi skrýtið. Svo kom þarna önnur kona, þær vinna þarna tvær semsagt, og hún skoðaði hann og hlustaði líka. Svo ákváðu þær að það væri best að taka röntgenmynd af honum, þær grunaði að þindin hefði etv fallið inn, eða að hann væri með eitthvað í lungunum. Hann fór í tvær röntgenmyndatökur og stóð sig eins og hetja, en enn voru þær ekki vissar um hvað þetta væri. Spurðu Ásu Ninnu hvenær þetta hefði byrjað og hún sagði eins og satt var, að við hefðum tekið eftir þessu fyrir nokkrum dögum, í mesta lagi viku síðan. Þær grunaði þá helst að eitthvað væri að hjartanu, en þær tóku eftir einhverju skrýtnu í kringum litla hjartað hans og ákváðu að gefa honum vökvalosandi lyf, en við eigum svo að gefa honum svoleiðis á hverjum degi. Einnig fékk hann fúkkalyfssprautu, svona ef þetta skyldi vera út frá einhverri sýkingu (þær töldu það þó ekki líklegt því hann er hitalaus), einhverjar tvær aðrar sprautur og svo hjartapillu. Hann á svo að fá tvær hjartapillur á dag yfir helgina.

Á mánudaginn erum við svo að fara með Jóakim í geldingu, og eigum þá að taka Gústa með svo þær geti skoðað hann aftur og séð hvort eitthvað hafi breyst við að taka þessar töflur.


Það má því segja að mömmuhjörtun hérna á Smiðjustígnum séu ósköp lítil og brotin þessa stundina. Karen og Ása Ninna eru útklóraðar frá því að gefa honum pillu í gær og Ása Ninna átti í harðri baráttu við litla skinnið áðan til að reyna að koma ofan í hann pillu. Það tókst ekki, svo núna bíður hún eftir að Karen komi heim til að hjálpa henni.

Ása Ninna er ansi stressuð því Karen og Bríet eru báðar að fara austur um helgina og þarf hún því að sjá um það ein að gefa honum 3 pillur á dag. En vonandi fer þetta að ganga eitthvað betur.

Við komum svo með frekari fréttir eftir helgina.

Prófíll

  • Nafn: Bríet, Ninna og Karen
  • Staður: Reykjavík
  • Atvinna: Háskólanemar
  • Hjúskaparstaða: Lausar og liðugar
  • Annað: Kellingarnar á Smiðjustígnum segja frá dagsins amstri og ýmsu fleira.

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Atburðarteljari

Könnun

Hvernig leggst komandi vetur í þig?